tæp á geði?!?!?!
Þannig er mál með vexti að nú er allt á fullu með lokaverkefnið.....!! Sit á bókó í CBS ALLANN DAGINN ALLA DAGA að skrifa skrifa skrifa...!! þetta gengur svona upp og ofan... merkilegt hvernig dagsformið getur verið misjafnt... einn daginn skrifar mar 5 bls og annan daginn skrifar mar hálfa !!! alveg MAGNAÐ...!!
Annars skifaði ég plan... hvað ég þyrfti að gera á hverjum degi... það gengur ágætlega að fara eftir því.... það eru líka frídagar þar inní.. eins og föstudagurinn var frídagur....!! Ástæðan fyrir því er sú að BO HALLDÓRS var með stórtónleika í Köben á fimmtudaginn síðasta.... Ekki hafði ég nú miklar væntingar... langaði meira að segja ekki svo mikið að fara.... EN VITI MENN... stemmningin var ROSALEG... Dansaði af mér lappirnar.. bókstaflega var á gólfinu í 3 klst held ég... SHAKIN' DA BOOTY.... :) það var margt um manninn... BO var með allskyns hjálparhellur þarna á sviðinu... hver stjarnan á fætur annarri tróð upp...!!! Eftir ballið var haldið út á plan þarna fyrir framan... þar sem við stóðum vinahópurinn að ná okkur niður eftir skemmtunina þá kom hver "stjarnan" á eftir annarri út úr byggingunni og okkur fannst MEGA DÚTÍ spennandi að smella nokkrum myndum af þeim með okkur..!!! Daginn eftir þegar ég skoðaði myndavélina þá hristi ég nú hausinn og hugsaði með mér að þetta væri nú ekki alveg besta múvið sem mar hefur tekið í gegnum tíðina....!! en þá kom fanney með besta kommentið sem var það að úr því við ættum heima í DK þá væri þetta allt í lagi!! Ég ætla að trúa því...!!! þetta minnti mig bara óstjórnlega á dagana okkar Guðríðar í Úthlíð þegar við vorum um 13og14 ára gamlar og yfir okkur spenntar yfir sveitaballa stjörnunum sem komu þangað.... HEHEHEHE
Anywho.... já skrifi skrifi skrifi....!!! á komandi helgi eru líka planaðar einhverjar pínu frístundir.. ástæðan fyrir því er koma Sasa bró. Hann ætlar að koma og fá að lúlla í kotinu hjá siggu syss... efast ekki um annað en að það eigi eftir að vera huggó ..!!! Andri verður fjarri góðu gamni þar sem ég gaf honum í afmælisgjöf af kíkja á Jóa vin sinn á Girona á Spáni! Hann á afmæli á morgun og flýgur þangað á morgun !! deginum fögnum við saman í fyrramálið með góðum morgunmat áður en hann fer í flug og gamla á bókó!!
Svona er lífið í Köben þessa dagana.... margt og mikið að gerast eins og alltaf.. allt ekkert jafn skemmtó en hver sagði að lífið væri tóm skemmtun...!!! Rúsínan í pylsuendanum er bara sú að eftir AKKÚRAT mánuð verð ég á leiðinni til London að pikka upp hannes bróður og förum við svo til TENERIFE að hitta familíuna...!! Ekki nóg með það þá er búið að kaupa við til MALASÍU og er brottför þann 7.júlí og heimkoma þann 4 ágúst !!!! VÚBBÍ DÚ !!!!!! búið að fá fyrsta umgang af sprautum gegn öllum fjandanum og verið í gangi að redda vegabréfum inní Cambódíu og Víetnam... Gæti þetta orðið meira spennandi !!!!! ?!?!?!?!?!?!
Takk í bili og megið þið góðu vinir hafa mig í bænum ykkar... biðja fyrir því að ég fari ekki á geði í þessum verkefnaskrifumm.... það tekur á geðið að sitja inni á bókó þegar það er 20 stiga hiti og glampandi sól úti og hver vinur á eftir öðrum að hringja og athuga hvort mar ætli nú ekki að kíkja út í góða veðrið...

-SIGGS
HEY by the way.... myndir af því þegar mútta var í heimsókn... myndir frá BO Halldórs og svo staffatjútt!! tjek it out :)
Bissí bissí
Síðan að stelpurnar fóru þá er búið að vera GEGGJAÐ að gera og er liggur við aldrei dauð stund hjá minni !!!
Ég skrapp heim í viku til þess að vinna fyrir SagaFilm og var það vægast sagt ÆÐISLEGT !! það var frábært að koma heim og hitta fólkið og VINNA VINNA VINNA ...!! ég var alveg í S-inu mínu þarna í vinnunni og sýndi sko mínar bestu hliðar og svei mér þá kom sjálfri mér á óvart hversu dugleg ég er í þessum geira ..!! en eins og máltækið segir.. "maður uppsker eins og maður sáir" á vel við því mér var boðin GEÐVEIK vinna áður en ég flaug aftur hingað út. Því miður þurfti ég að neita þar sem skólinn verður víst að ganga fyrir þessa dagana því það er SVO lítið eftir og ég get ekki farið að klúðra skólanum svona á endasprettinum !! En það að hafa verið boðin þessi vinna er ekkert nema ótrúlegt og get ég svei mér þá verið þokkalega stolt af sjálfri mér... og það kæru vinir get ég sagt ykkur að er góð tilfinning :)
Annars kom ég aftur hingað út á mánudaginn (14 apríl) og þá tók nú við svefn... (ég varð að bæta upp fyrir ansi fáar klukkutstundir sem ég svaf á meðan ég var heima sökum vinnu.... en það þýddi nú ekkert að eyða of miklum tíma í að sofa því lokaverkefnið beið mín og þar sem það eru 6 vikur í skil þá var nú betra svona að byrja á þessu blessaða verkefni...!! það er nú komið í gang til allrar hamingju... :) en þrátt fyrir það þá tók ég mér nú frí frá skrifum í gær og í dag þar sem hún mútta er á svæðinu :) Við skvísurnar skelltum okkur til Malmö að shoppa í gær og það var BARA ÆÐI !! svo var ég búin að plana stelpukvöld og fór ég með hana út að borða og svo á Ísbarinn á hótelinu mínu ... !! svo enduðum við kvöldið auðvitað á barnum í vinnunni þar sem við mæðgurnar skáluðum í kokteil og rifjuðum upp gamla tíma

Deginum í dag var svo eytt á Strikinu í GEÐVEIKU veðri og ekki leiðinlegt fyrir múttu að eyða afmælisdeginum sínum hérna í baunalandinu...!!! í kvöld fórum við svo á ótrúlegan veitingastað og ég er ekki frá því að við fengum besta mat sem ég hef smakkað og þá bestu þjónustu sem ég hef upplifað ...!!!

Nú fara huggulegheitunum að ljúka í bili og við tekur frekar BISSÍ vika.... BÓKASAFNIÐ.... VINNA... BÓKASAFNIÐ....Tónleikar með Bjögga Halldórs í cirkus byggingunni... BÓKASAFNIÐ....VINNA.... Innflutningspartý.... COWBOY/GIRL þema partý.... BÓKASAFNIÐ ......
jamm og jamm og jú... svona er lífið hjá siggunni í Köben.... múttan yfirgefur svæðið á morgun... Sasi bróðir er væntanlegur í byrjun maí... Harpa og Árni mæta á svæðið í maí einnig og svo verður mín bara búin að skrifa lokaverkefnið og farin til London og Tenerife áður en mar veit af...!! Dagarnir fljúga gjörsamlega frá mannig og það er EINS GOTT að halda vel á spöðunum svo mar geti nú klárað skólann með stæl...!!
Þessum skrifum vil ég svo ljúka með þessum bút sem Andri rakst á og sendi mér.... honum finnst þetta eiga eitthva svo vel við mig.... lesið og dæmið nú sjálf:
Yngsta barnið (örverpið)
Jákvæðir eiginleikar: Yngstu börnin eru í raun klappstýrur heimsins. Þau hafa sérlega góða hæfileika í mannlegum samskiptum og þau elska að skemmta öðrum og tala við annað fólk. Þau eiga auðvelt með að kynnast nýju fólki og eiga mjög auðvelt með að láta fólki finnast það velkomið. Þau þrífast vel í stórum hópi og eru hrókar alls fangaðar og eru ekki hrædd við að taka áhættu.
Neikvæðir eiginleikar: Þau verða fljótt leið og eiga stundum erfitt með að halda sig við eitthvað eitt ákveðið í langan tíma. Að vissu leiti eru þau mjög sjálfhverf. Þau hafa t.d. mjög óraunhæfar væntingar til makans og ætlast til þess að sambandið sé eintóm gleði en að sjálfsögðu er lífið ekki þannig. Þolinmæði er ekki sterkasti eiginleiki yngsta barns.
(Fyrir þá sem ekki vita þá er ég yngsta barnið í fjölskyldunni)
