GLEÐILEG JÓL
23. desember 2007 klukkan 13:15
Ég og Andri óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og megið þið hafa það sem ALLRA ALLRA best yfir hátíðarnar !!!
Við hjúin erum komin í gífurlegt jólaskap og hlökkum til þess að eyða fyrstu jólunum okkar saman og í Kaupmannahöfninni

Ef þið viljið sjá hversu jólalegt er orðið hjá okkur þá getið þið kíkt inná myndasíðuna mína, þar er ég búin að setja myndir af jólapuntinu í kotinu okkar og af flottasta jólatréi í HEIMI ;)
Enn og aftur Gleðileg jól
Jólaknús frá Köben
2x10=meiri lærdómur....
18. desember 2007 klukkan 22:44
já neineinei... ALLS EKKI búin að gleyma blogginu !!!!! ég held að það sé bara pínulítið erfitt að skrifa þegar líf manns er ekki mikið annað en skóli...!! en svo fór ég einmitt að hugsa hvað ég hefði verið að gera í síðustu viku og það var bara heill hellingur...!! fyrir utan það að vera að stunda skólann og reyna að læra fyrir próf þá var ég því láni gædd að vera boðin í ÍSLENSKA ÝSU. Gunna skvísa var svo sæt að bjóða nokkrum skvísum í rammíslenska ýsu og soðnar kartöflur !!!! Ég gæti lifað á þessu.... eða allavega þangað til að ég fengi ógeð !!!
Á föstudaginn gerðumst við hjúin svo fræg að stíga aðeins út úr boxinu og fara "alla leið" uppí Österbro í afmælisveislu !!! Það er svona þegar mar býr í miðbænum þá fer mar ekki mikið neitt annað nema niður í bæ og svo heim..jú og í skólann og svona... en mar fer einhverra hluta vegna ekki mikið þangað "uppeftir" ...
Á laugardeginum voru nokkrir vinir okkar að flytja þannig að Andri fór að hjálpa til við flutning... en þar sem ég er ennþá ansi fötluð á fæti þá ákvað ég að láta þá alveg um þetta og skella bara í smákökur í staðinn...!! Ég lét nú samt sjá mig þegar allir voru orðnir uppgefnir eftir flutninginn og komnir í bjórinn :)
Annars er það helsta kannski svona að frétta að ég kláraði prófin í gær og ekki nema bara hvað að mín er með tvö stykki 10 ur í vasanum fyrir þessi jólin!! Held að ég geti bara verið nokkuð sátt.... Þó ekki sátt við þá staðreynd að ég varð að láta duga að fagna með 2 kokteilum í gær og vera komin snemma heim þar sem morguninn í morgun tók við með 7 bókum um CRM og branding og 20 auðar WORD síður sem þurfa að fyllast með bulli um þetta efni fyrir 8.janúar.!!
Svona by the way þá henti ég inn örfáum myndum á flickr !! svo tekur nú við Vinna, lærdómur og julehygge næstu daga þannig að mar verður kannski duglegur á myndavélinni... það er að segja í þessi síðastnefnda:)
-Sigga
Til mín frá mér
09. desember 2007 klukkan 19:15
já hvað er betra en að hræra saman í eitt blogg þegar mar á að læra !!!??? veit ekki hvort þetta sé gott eða slæmt að ég sé byrjuð að skrifa hérna aftur..... góð afsökun fyrir að vera ekki að læra..!!!! :)
Nú er sunnudagskvöld og ég sit hérna við borðstofuborðið með kerti allt í kringum mig, kveikt er á kerti nr. 2 í aðventukransinum, gyðingaljósið skín skært í eldhúsglugganum og rauða jólaserían glóir úti á svölum. já og jólatónlistin ómar í eyrum mínum !! allt er þetta frekar huggulegt og kósý en það að þurfa að vera læra eyðileggur frekar mikið stemmninguna....
uuuu ok ein frekar neikvæð hérna........ en ég er alveg viss um að ég verði orðin ROSA jákvæð þegar mar getur farið að skella sér í jólatívolí, labbað strikið og verslað í huganum..... verst er að ég hef enga afsökun til þess að fara að kaupa eitthvað því ég er búin að afgreiða jólagjafakaupin fyrir þessi jólin og á einungis eftir eina gjöf. Spurning hvort mar eigi að kaupa sér eitthvað sem er bara TIL MÍN FRÁ MÉR?? er það ekki alveg leyfilegt...!!
Heyrðu já svo eru það jólakortin...... haldið að ég hafi ekki skellt í jólakort á mettíma í gær!!! nennti ekki að læra heldur þá og skellti í kort og nokkuð ánægð með útkomuna... ætlaði ekki að senda nein jólakort þetta árið en svei mér þá þó að ég fái nú ekki mörg jólakort ár eftir ár þá er sælla að gefa en að þiggja og mér finnst rosa gaman að senda þessi kort !!! (þið sem ætlið að senda mér alls ekki hætta við samt þó ég segi þetta... ég er alltaf ROSA glöð þegar ég fæ kortin sko) hugmyndin að kortunum er ansi sniðug þetta árið og klappaði ég sjálfri mér á bakið að koma upp með þessa hugmynd að kortunum þetta árið
þannig að ykkur getur farið að hlakka til þess að fá kort þetta árið !!! (eins gott að ég muni að fara með þau í póst...)
Jólakveðja, Siggs

þannig að ykkur getur farið að hlakka til þess að fá kort þetta árið !!! (eins gott að ég muni að fara með þau í póst...)Jólakveðja, Siggs
nýtt blogg, ný myndasíða... jíhú....!!
02. desember 2007 klukkan 16:41
Já svei mér þá þú sérð rétt !!! það er komin ný færsla og mun það vera vegna þess að ég er komin í full swing með nýja myndasíðu og þá þýðir ekkert annað en að blogga pínulítið og promota síðuna :) Þetta blogg lifði nú bara fyrir myndasíðuna sem átti góða ævi en hún er víst bara dáin og dánarorsökin ókunn !!!
Ástæðan fyrir nýju bloggi, nýrri myndasíðu og öllu þessu er sú að ég er búin að þurfa AÐ LIGGJA í rúminu síðan á föstudag þar sem ég var í uppskurði á fæti og ómögulegt fyrir mig að ganga.... !!! þá þarf mar að finna sér eitthvað að gera og þar sem ég er búin að GERA ALLT og EKKERT að mér finnst, þá var alveg upplagt að nýta tímann í þetta bull
Annars er allt gott að frétta úr Kaupinmannahöfninni, allir hressir og kátir og það sem ber hæst er að við skötuhjú ætlum að eyða jólunum tvö ein hérna úti !!! pakkarnir eru nú þegar byrjaðir að streyma inn í hús, jólasérían komin upp úti á svölum og jólalög farin að óma....!! ég held að það verði ansi erfitt að koma sér í gang í lærdómnum fyrir jólaprófin
Gott fólk.... hmmmm ef einhver er ennþá að kíkja á þetta blogg.... finnst pínu eins og ég sé að tala hérna við sjálfan mig en það er þá bara í góðu lagi þar sem ég er nú líka uppdópuð af verkjalyfjum þessa dagana vegna uppskurðsins...
en linkurinn á myndasíðuna er: flickr.com/siggahp og munu vera þar nýjar myndir í bland við gamlar
ég vona nú að það sé einhver sem getur notið myndanna Ykkar Sigga