Aðalvalmynd

Hláturinn lengir lífið......

19. apríl 2007 klukkan 20:41
Það er naumast hvað mar finnur sér eitthvað annað að gera þegar mar á að vera að læra !!!
Tveggja vikna lokaverkefnaskrif eru komin í gang, skil þann 2.maí...  þannig að það er eins gott að vera DUGLEGUR þangað til !!!


Það liggur við að sigga litla ég sé nýbúin að jafna mig á ferðalaginu og tímamuninum... hehe ég er svo mikill auli..... það er bara svo gott að sofa og ég bara ALGERLEGA snéri sólahringnum við...!! þannig að það þarf að skrapa mig upp með pönnukökuspaða á morgnana !!!

Annars setti ég inn myndir frá SVAÐALEGU tjútti frá því á laugardag...... það er langt síðan ég hef hlegið svona óskaplega mikið........... gleðin endaði ekki þar því á sunnudeginum var deginum eytt í góðra vina hópi í Kongens Have í SVAKALEGU sumarveðri.....  þrátt fyrir ekki svo mikinn hressleika sem rekja mátti til kvöldsins áður þá var hann fljótt að hverfa vegna góðs veðurs og töku 2 í hláturskasti..... fólkið í kringum okkur var farið að STARA... ég er alveg viss um að það var bara öfundsjúkt og vildi reyna að vera með í gleðinni...... Svalur

En back to writing.... nú er ég bara farin að teygja lopann ( svona eins og mamma manns sagði þegar mar var lítill og vildi ekki fara að sofa... hehe)

Sofið rótt og komið fljótt........Hissa

myndir

13. apríl 2007 klukkan 22:02

AIGHT...... búin að henda inn myndunum af skipinu og öllu því ævintýri.....

vonandi þið skemmtið ykkur vel við að skoða..........það er samt hættulegt að skoða þetta því manni langar bara að leggja af stað í ferðalag ....... !

Góða helgi

Ævintýrið búið.... í bili :)

11. apríl 2007 klukkan 23:30
 Jamm og jamm og jú.......... Þá erum við komin heim úr landi offitu og ýkja.........

ÞESSI FERÐ VAR Í EINU ORÐI SAGT............ GEÐVEIK !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Byrjuðum í Miami þar sem hún Vilborg tók hlýlega á móti okkur ásamt herbergisfélögum sínum.... ég átti afmæli daginn sem við fórum þannig að vegna tímamismunar var þetta LENGSTI afmælisdagur sem ég hef átt...það var soldið gaman að eiga afmæli svona lengi.... afmælinu var fagnað með að fara á cheescake factory þar sem ég fékk STÆRSTU KÖKUSNEIÐ sem ég hef séð.... og auðvitað var byrjað á Strawberry Daiquiry Glottandi

Við létum ekki ferðaþreytu á okkur fá og það var vaknað eldsmenna á föstudagsmorgninum og ég VARÐ að fara í TARGET (mörgum til mikillar undrunar) en VÁ.... þetta er GEÐVEIKISLEGA stór búð.. og ég skemmti mér konunglega að skoða allt sem þar var !! eftir Target þá drifum við okkur á SOUTH BEACH þar sem ARNAR kom alla leiðina frá Naples til að hitta ferðalangana..... við eyddum deginum í þessum frábæra bæjarhluta og hlustuðum á skemmtilegar sögur um ameríkana og upplifanir sem Arnar og Vilborg hafa lent í Hlæjandi Á laugardeginum var ekkert búið að versla þannig að við tókum power-shopping fyrir hádegi áður en við lögðum af stað til Fort Lauderdale...................

Í Fort Lauderdale hittum við fjölskylduna hans Andra sem komin var í mollið, auðvitað...hehe..... það var ekkert hægt að stoppa shopping-spreeið þannig að það var haldið áfram og gott ef ekki þá flugu nokkrir peningarnir þar Hissa

Nóg um Mollin og yfir í SKIPIÐ.............................. það var ekkert nema PARADÍS............ frábær leið til að eyða fríinu sínu..... það var ekki einn hlutur við þetta blessaða skip sem hægt var að finna að!!! mar gat etið ALLAN daginn.... alltaf legið í sólbaði...... káetan var yndisleg.... rúmið BARA ÞÆGILEGT!! Starfsfólkið yndislegt og síðast en ekki síst þá var veðrið FRÁBÆRT.... sem betur fer var ALLTAF gola þannig að mar var ekkert að deyja úr hita þrátt fyrir yfir 35° uppá hvern einasta dag !!!
Við stoppuðum á þremur eyjum og það var eins og að labba inn í bíómynd
HVÍTUR SANDUR og HIMINBLÁR SJÓR
á fyrstu eyjunni, ST.KITTS þá fórum við í skoðunarferð um eyjuna og hlustuðum á sögu eyjunnar
önnur eyjan var, ST.LUCIA þar fórum við Andri á lítinn bát sem sigldi með okkur LENGST í burtu og stoppað svo in the middle of nowhere þar sem var farið að SNORKLA.......
á þriðju eyjunni, ST.MARTEEN fórum við með leigubíl yfir á franska hluta eyjunnar (hinn hlutinn er hollenskur) og fórum á FLOTTUSTU STRÖND EVER og eyddum deginum þar.... PANT eiga heima þar !!!!!

síðustu tveir dagarnir á skipinu fóru svo bara í að slappa af og reyna að ná í smá brúnku... það gengur aldrei vel hjá albínóanum mér !

En jæja....... þá er sólarsagan sögð í grófum dráttum... myndirnar segja söguna betur og er ég búin að henda inn myndum frá Miami.... nú er klukkan orðin hálf tvö og ég nenni ekki að setja inn myndirnar af skipaævintýrinu en þær ættu að koma inn á morgun eða föstudaginn Svalur og trúið mér það eru sko MARGAR myndir þannig að þið getið byrjað að hlakka til, híhí ;)

Ykkar sigga.... sem er byrjuð að flagna .............. Óákveðinn

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigríður Hrönn Pálsdóttir
  • Staður: Frederiksberg C
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: NEMI
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð

Klukkan

Leit