það er'a koma jól........
20. desember 2006 klukkan 20:45
ER AÐ KOMA HEIM !
Jamms... það er rétt... ég er að koma heim í kvöld :) NÆS... ooohhh það verður svo gott að komast heim í SKÍTAkuldann og hitta fólkið!!! Hugsa örugglega mest um hvað það verður gott að borða jólamatinn og fá MALT OG APPELSÍN...!! namminamminamm...
Síðustu dagar eru búnir að vera svaka skemmtilegir.... kokteilatjútt,jólaföndur, tónleikar, og já kláraði prófið mitt á mánudaginn :)... svo var aftur farið á tjútt í gær (julefrokost með vinnunni) eftir prófið á mánudaginn var skellt sér til læknis þar sem flensan er við það að fara að DREPA mig.... hann skellti mér a pensillín og eitthvað ógeðistnefsprey sem leysir ALLT upp þarna uppi....
en held að ég sé öll að koma til!!! eftir læknaheimsókn þá var skellt sér á strikið og sogið að sér jólastemmaranum...!!! hittum síðan aðalliðið og það var drukkinn langþráður bjór áður en við gömlu fórum á Royal hótelið til að sofa :) áttum inni fría nótt og hvað er betra en að skella sér á hótel svona þegar mar er búinn með prófin 
Svo er bara dagurinn í dag og það þýðir bara að það eru 5 tímar í að við eigum að vera komin út á völl og það er ekki byrjað að pakka.......... En ég næ því nú alveg...... málið er bara að ég þarf líka að ná að þrífa höllina..... þvo einhvern þvott og pakka inn jólagjöfunum...
Við skulum nú sjá hvað ég næ að gera!!!
Siggz.................

Við skulum nú sjá hvað ég næ að gera!!! Siggz.................

Ný myndasíða!
11. desember 2006 klukkan 05:01
TJEKKIÐ Á ÞESSUM LINK........ ER KOMIN MEÐ NÝJA MYNDASÍÐU !!!
http://picasaweb.google.com/SiggaPalsd
Heyriði...... áttræði sjúklingurinn með hóstann skellti sér bara á djammið í gær....!!! Var að mana mig í það ALLANN daginn að fara.........ákvað svo klukkutíma eftir settan mætingartíma að henda mér úr náttfötunum og skella mér í partýið :) eftir einn bjór fann mín sko ekki eftir neinu og tjúttaði like there were no tomorrow !!! :)
Geggjað skemmtilegt kvöld og VÁ hvað það er fyndið að djamma svona með bekknum........það kom ýmislegt í ljós og margt fékk að fljúga sem kannski annars ekki hefði verið sagt ef áfengi hefði ekki verið við hönd...!!!
hehehehe.... ég efast ekki um annað en það verði soldið margir vandræðalegir á þriðjudaginn í skólanum!!!!
Sem er barílagi........
Auðvitað skellti ég mér svo í bæinn með einni stelpu í bekknum og vinum hennar....!!! eftir tjútt með þeim þá varð ég nú að fara að hitta næstuppáhalds strákana mína........... Óskar,Pétur og Raggi voru skrautlegir að vanda og deildum við sögum kvöldsins á Írskum pöbb og nutum hvers einasta sopa þar sem BJÓRINN VAR DÝR!!!
Frábært kvöld endaði svo með Burger King í brúnum bréfpoka á bekk á Rådhuspladsen með Skara....... VILDI SVO MIKIÐ AÐ ÞAÐ VÆRI TIL MYND AF ÞESSU.........!!!
Jæja....... eftir LETISUNNUDAG ÁRSINS........ þá er kominn tími á að fara í bólið, ætla að vera komin í búðirnar fyrir opnun og ná að versla jólagjafir áður en búðirnar fyllast af fólki...!!!
Endilega kíkið á myndirnar........... ;)
DESEMBER!!!!!
06. desember 2006 klukkan 03:30
Þá er mánuður prófa of jóla genginn í garð..... ég finn að vísu ekkert rosalega mikið fyrir jólaprófum eins og hefur verið síðustu ár...... er að skila verkefni á föstudaginn sem er meira og minna búið og svo er bara að verja það þann 18.des. Þarna á milli er bara 3 dagar í skólanum þannig að þessi prófamánuður mikli er bara ekkert það erfiður þetta árið!!!
En ég er sko farin að finna fyrir jólunum....... Mamma og Palli voru hjá okkur um helgina og það var sko gert jólalegt...... palli kom með jólaseríu og búið er að skreyta svalirnar með jólaljósum, þeir kallarnir smíðuðu síðan annan ljósastokk eins og gert var síðast þegar Palli kom :) hehe.... þannig að íbúðin á Búllivardinu er sko orðin GEGGJAÐ FLOTT.......
svo ákvað ég nú að taka upp pínu jólaskraut og skreyta til að að hafa kósý....!!! Nú er bara að bjóða í jólakaffi..........!!!
en já, svo var auðvitað farið í bæinn með þeim gömlu..... kíkt í jólatívolí og út að borða..... !! alltaf gaman að fá heimsóknir..... og það skemmir sko ekki þegar mar á gjafmilda foreldra sem gera mann einni úlpu ríkari..... nokkrum flíkum ríkari og hvað þá einum I-POD NANO ríkari.......... :) Jólin koma snemma hjá minni í ár!!!!
Spurningin þetta árið er hvort mar eigi að eyða tíma og orku í það að skrifa jólakort...... hét mér í fyrra að ég myndi ekki gera það aftur.... því ég sendi alltaf frekar mörg kort en ekki get ég sagt að ég fái tilbaka frá þeim sem ég sendi til....... einhvernveginn fæ ég alltaf frá fólki sem ég sendi ekki jólakort..........!!!!! hehe...... frekar mikið mis......
Annars segir mín bara fínt í Köben.... spennan eykst með hverjum degi því það styttist í heimkomu... lendi á klakanum 20.des.... svo skilst mér að það sé stanslaus dagskrá mestan tímann sem ég er heima.... það er ekkert að því... mar er aldrei í fríi þegar mar kemur heim á skerið!!
En... ekki er allt tekið út með sældinni, þrátt fyrir jólafíling og lítið prófastress , þá sit ég hérna með hor í nös og hósta eins og áttræður, hundrað ára gamall kall sem reykt hefur í 90 ár...!!!! Andri forðast mig eins og heitann eldinn og ég bíð eftir að konan fyrir ofan banki á hurðina og biðji mig um að hætta þessu ónæði....!!! Það er bara eins gott að mar verði orðinn hress fyrir laugardaginn því no matter what þá ætlar litla ég að klæða mig í djammgallann og tjútta ærlega með bekkjarfélögum og vinum