já og gleðilegt ár......
02. janúar 2008 klukkan 13:39
Jájájájá, enn eitt árið gengið í garð !!!! 2007 alveg yndislegt ár í ALLA staði og eru þessir hátíðisdagar búnir að vera frábærir !!!!!
það eru fullt af myndum komnar inná myndasíðuna og segja myndirnar allt sem segja þarf!!
Takk fyrir allt gamalt og gott og megi árið 2008 verða enn betra og skemmtilegra fyrir okkur öll

Kær kveðja um gleðilegt ár frá okkur hér í Köben,
Andri og Sigga
GLEÐILEG JÓL
23. desember 2007 klukkan 13:15
Ég og Andri óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og megið þið hafa það sem ALLRA ALLRA best yfir hátíðarnar !!!
Við hjúin erum komin í gífurlegt jólaskap og hlökkum til þess að eyða fyrstu jólunum okkar saman og í Kaupmannahöfninni

Ef þið viljið sjá hversu jólalegt er orðið hjá okkur þá getið þið kíkt inná myndasíðuna mína, þar er ég búin að setja myndir af jólapuntinu í kotinu okkar og af flottasta jólatréi í HEIMI ;)
Enn og aftur Gleðileg jól
Jólaknús frá Köben
2x10=meiri lærdómur....
18. desember 2007 klukkan 22:44
já neineinei... ALLS EKKI búin að gleyma blogginu !!!!! ég held að það sé bara pínulítið erfitt að skrifa þegar líf manns er ekki mikið annað en skóli...!! en svo fór ég einmitt að hugsa hvað ég hefði verið að gera í síðustu viku og það var bara heill hellingur...!! fyrir utan það að vera að stunda skólann og reyna að læra fyrir próf þá var ég því láni gædd að vera boðin í ÍSLENSKA ÝSU. Gunna skvísa var svo sæt að bjóða nokkrum skvísum í rammíslenska ýsu og soðnar kartöflur !!!! Ég gæti lifað á þessu.... eða allavega þangað til að ég fengi ógeð !!!
Á föstudaginn gerðumst við hjúin svo fræg að stíga aðeins út úr boxinu og fara "alla leið" uppí Österbro í afmælisveislu !!! Það er svona þegar mar býr í miðbænum þá fer mar ekki mikið neitt annað nema niður í bæ og svo heim..jú og í skólann og svona... en mar fer einhverra hluta vegna ekki mikið þangað "uppeftir" ...
Á laugardeginum voru nokkrir vinir okkar að flytja þannig að Andri fór að hjálpa til við flutning... en þar sem ég er ennþá ansi fötluð á fæti þá ákvað ég að láta þá alveg um þetta og skella bara í smákökur í staðinn...!! Ég lét nú samt sjá mig þegar allir voru orðnir uppgefnir eftir flutninginn og komnir í bjórinn :)
Annars er það helsta kannski svona að frétta að ég kláraði prófin í gær og ekki nema bara hvað að mín er með tvö stykki 10 ur í vasanum fyrir þessi jólin!! Held að ég geti bara verið nokkuð sátt.... Þó ekki sátt við þá staðreynd að ég varð að láta duga að fagna með 2 kokteilum í gær og vera komin snemma heim þar sem morguninn í morgun tók við með 7 bókum um CRM og branding og 20 auðar WORD síður sem þurfa að fyllast með bulli um þetta efni fyrir 8.janúar.!!
Svona by the way þá henti ég inn örfáum myndum á flickr !! svo tekur nú við Vinna, lærdómur og julehygge næstu daga þannig að mar verður kannski duglegur á myndavélinni... það er að segja í þessi síðastnefnda:)
-Sigga
Til mín frá mér
09. desember 2007 klukkan 19:15
já hvað er betra en að hræra saman í eitt blogg þegar mar á að læra !!!??? veit ekki hvort þetta sé gott eða slæmt að ég sé byrjuð að skrifa hérna aftur..... góð afsökun fyrir að vera ekki að læra..!!!! :)
Nú er sunnudagskvöld og ég sit hérna við borðstofuborðið með kerti allt í kringum mig, kveikt er á kerti nr. 2 í aðventukransinum, gyðingaljósið skín skært í eldhúsglugganum og rauða jólaserían glóir úti á svölum. já og jólatónlistin ómar í eyrum mínum !! allt er þetta frekar huggulegt og kósý en það að þurfa að vera læra eyðileggur frekar mikið stemmninguna....
uuuu ok ein frekar neikvæð hérna........ en ég er alveg viss um að ég verði orðin ROSA jákvæð þegar mar getur farið að skella sér í jólatívolí, labbað strikið og verslað í huganum..... verst er að ég hef enga afsökun til þess að fara að kaupa eitthvað því ég er búin að afgreiða jólagjafakaupin fyrir þessi jólin og á einungis eftir eina gjöf. Spurning hvort mar eigi að kaupa sér eitthvað sem er bara TIL MÍN FRÁ MÉR?? er það ekki alveg leyfilegt...!!
Heyrðu já svo eru það jólakortin...... haldið að ég hafi ekki skellt í jólakort á mettíma í gær!!! nennti ekki að læra heldur þá og skellti í kort og nokkuð ánægð með útkomuna... ætlaði ekki að senda nein jólakort þetta árið en svei mér þá þó að ég fái nú ekki mörg jólakort ár eftir ár þá er sælla að gefa en að þiggja og mér finnst rosa gaman að senda þessi kort !!! (þið sem ætlið að senda mér alls ekki hætta við samt þó ég segi þetta... ég er alltaf ROSA glöð þegar ég fæ kortin sko) hugmyndin að kortunum er ansi sniðug þetta árið og klappaði ég sjálfri mér á bakið að koma upp með þessa hugmynd að kortunum þetta árið
þannig að ykkur getur farið að hlakka til þess að fá kort þetta árið !!! (eins gott að ég muni að fara með þau í póst...)
Jólakveðja, Siggs

þannig að ykkur getur farið að hlakka til þess að fá kort þetta árið !!! (eins gott að ég muni að fara með þau í póst...)Jólakveðja, Siggs
nýtt blogg, ný myndasíða... jíhú....!!
02. desember 2007 klukkan 16:41
Já svei mér þá þú sérð rétt !!! það er komin ný færsla og mun það vera vegna þess að ég er komin í full swing með nýja myndasíðu og þá þýðir ekkert annað en að blogga pínulítið og promota síðuna :) Þetta blogg lifði nú bara fyrir myndasíðuna sem átti góða ævi en hún er víst bara dáin og dánarorsökin ókunn !!!
Ástæðan fyrir nýju bloggi, nýrri myndasíðu og öllu þessu er sú að ég er búin að þurfa AÐ LIGGJA í rúminu síðan á föstudag þar sem ég var í uppskurði á fæti og ómögulegt fyrir mig að ganga.... !!! þá þarf mar að finna sér eitthvað að gera og þar sem ég er búin að GERA ALLT og EKKERT að mér finnst, þá var alveg upplagt að nýta tímann í þetta bull
Annars er allt gott að frétta úr Kaupinmannahöfninni, allir hressir og kátir og það sem ber hæst er að við skötuhjú ætlum að eyða jólunum tvö ein hérna úti !!! pakkarnir eru nú þegar byrjaðir að streyma inn í hús, jólasérían komin upp úti á svölum og jólalög farin að óma....!! ég held að það verði ansi erfitt að koma sér í gang í lærdómnum fyrir jólaprófin
Gott fólk.... hmmmm ef einhver er ennþá að kíkja á þetta blogg.... finnst pínu eins og ég sé að tala hérna við sjálfan mig en það er þá bara í góðu lagi þar sem ég er nú líka uppdópuð af verkjalyfjum þessa dagana vegna uppskurðsins...
en linkurinn á myndasíðuna er: flickr.com/siggahp og munu vera þar nýjar myndir í bland við gamlar
ég vona nú að það sé einhver sem getur notið myndanna Ykkar Sigga
Tilfinningaflóran
30. maí 2007 klukkan 20:20
Merkilegt þetta líf.... allt tekur enda og hlutirnir þjóta bara framhjá mér..... ég er alveg að berjast við það að muna að njóta hverrar einustu mínútu því áður en ég veit af þá er hún farin....!!!
Það er mikið búið að ganga á síðustu vikur og ég held að öll tilfinningaflóran er búin að banka uppá hjá mér...!!!
Stressið var að DREPA mig í kringum prófið mitt... sem betur fer er það yfirstaðið og fékk barasta 9 í einkun
Gleðin reið ríkjum þegar prófinu lauk og það var sko tekið á því skemmtunarlega séð...!!! Þreytan tók svo við og í miðju stússi niðri í bæ daginn eftir prófið þá þurfti ég bara að leggja mig í almenningsgarði á leiðinni heim því ég var svo þreytt.... hehehe.. það var líka svo heitt úti að það var alveg í lagi að staldra aðeins við og leggjast niður og horfa á heiðskíran himininn
Tilhlökkunin að fá mömmu og Palla var gífurleg og voru þau hjá okkur í kotinu yfir helgina...!!! alltaf jafn gott og gaman að fá þau og slógu við öll met í að vera aktív þessa helgina...!!!! við leigðum bíl á sunnudaginn og keyrðum ÚT UM ALLT... fórum í heimsókn til Mary og Frederik... höllin þeirra er barasta nokkuð flott... var að vonast til að vera boðin inn í kaffi en það gerðist nú því miður ekki
svo var skellt sér yfir til Malmö á mánudaginn og deginum eytt þar....!! gömlu fóru svo í gær en Hannes bró sem kom óvænt í heimsókn fór bara núna áðan....!! þannig að hér er mikið búið að ganga á og Andri er að skila lokaverkefninu á morgun!!!!! þannig að við tekur bara vinnan, kaffihús, tjútt, spjall við góða vini sem búið er að VANRÆKJA í OF LANGAN TÍMA.... við erum varla búin að mingla við annað fólk síðan að prófin byrjuðu....... svo þarf nú að bjóða í eins og eitt eða tvö matarboð... liggja í Kongens Have og miklu miklu meira svona skemmtilegt...!!!! að vísu hef ég bara 30 daga til að gera ALLT en það er bara í góðu og það er ekkert annað í stöðunni en að njóta tímans vel!!!
Ég veit að ég lofaði að blogga ekki nema ég væri að setja inn myndir og trúið mér ég á sko FULLT af myndum til að setja inn... en það er eitthvað í gangi með dæmið sem uploadar myndunum inná síðuna þannig að það þarf aðeins að bíða.....
Nú kveðja bændur þar sem vekjaraklukkan er stillt á 04:30
og verður það næstu 4 daga.... ! en lífið er ekki eintóm gleði og mar þarf víst að vinna sér inn peninga svona inn á milli
Það er mikið búið að ganga á síðustu vikur og ég held að öll tilfinningaflóran er búin að banka uppá hjá mér...!!!
Stressið var að DREPA mig í kringum prófið mitt... sem betur fer er það yfirstaðið og fékk barasta 9 í einkun
Gleðin reið ríkjum þegar prófinu lauk og það var sko tekið á því skemmtunarlega séð...!!! Þreytan tók svo við og í miðju stússi niðri í bæ daginn eftir prófið þá þurfti ég bara að leggja mig í almenningsgarði á leiðinni heim því ég var svo þreytt.... hehehe.. það var líka svo heitt úti að það var alveg í lagi að staldra aðeins við og leggjast niður og horfa á heiðskíran himininn
Tilhlökkunin að fá mömmu og Palla var gífurleg og voru þau hjá okkur í kotinu yfir helgina...!!! alltaf jafn gott og gaman að fá þau og slógu við öll met í að vera aktív þessa helgina...!!!! við leigðum bíl á sunnudaginn og keyrðum ÚT UM ALLT... fórum í heimsókn til Mary og Frederik... höllin þeirra er barasta nokkuð flott... var að vonast til að vera boðin inn í kaffi en það gerðist nú því miður ekki
svo var skellt sér yfir til Malmö á mánudaginn og deginum eytt þar....!! gömlu fóru svo í gær en Hannes bró sem kom óvænt í heimsókn fór bara núna áðan....!! þannig að hér er mikið búið að ganga á og Andri er að skila lokaverkefninu á morgun!!!!! þannig að við tekur bara vinnan, kaffihús, tjútt, spjall við góða vini sem búið er að VANRÆKJA í OF LANGAN TÍMA.... við erum varla búin að mingla við annað fólk síðan að prófin byrjuðu....... svo þarf nú að bjóða í eins og eitt eða tvö matarboð... liggja í Kongens Have og miklu miklu meira svona skemmtilegt...!!!! að vísu hef ég bara 30 daga til að gera ALLT en það er bara í góðu og það er ekkert annað í stöðunni en að njóta tímans vel!!! Ég veit að ég lofaði að blogga ekki nema ég væri að setja inn myndir og trúið mér ég á sko FULLT af myndum til að setja inn... en það er eitthvað í gangi með dæmið sem uploadar myndunum inná síðuna þannig að það þarf aðeins að bíða.....

Nú kveðja bændur þar sem vekjaraklukkan er stillt á 04:30
og verður það næstu 4 daga.... ! en lífið er ekki eintóm gleði og mar þarf víst að vinna sér inn peninga svona inn á milli
Lífið er yndislegt ég geri það sem ég vil.........
04. maí 2007 klukkan 22:01
Hvernig í ósköpunum á ég að geta hlakkað til þess að koma heim í sumar þegar það er yfir 20 stiga hiti hérna í Köben og mar getur legið í Kongens Have með tærnar upp í loft að kafna úr hita og umvafin skemmtilegu fólki...........!!?!?!?!?!?!???? ooohhh ég á svo erfitt með að hugsa til þess að ég þurfi að fara úr þessari gleði hérna og fara heim í kuldann á íslandinu... en á sama tíma þá hlakka ég svo mikið til að koma heim og vera í faðmi fjölskyldunnar og allra minna vina sem ég er svo heppin að eiga...!!!!!
En það er ekkert skrýtið að þetta sé erfitt þegar mar eyðir dögunum svona: sunndagskaffi heima hjá Robba á 30 fermetra svölum....., liggjandi í Kongens Have með pönnsur, heimasmurnar samlokur og öl...., í fimmtudagsbjór..., hjóla í skólann á hlírabolnum og njóta þess að þjóta í gegnum heitann vindinn...!!!!
ekki nóg með það að það sé eintóm gleði og sól þá er ég líka búin að skila lokaverkefninu og ekki próf fyrr en 22.maí.... þannig að nú tekur við vinna á hótelinu fyrir hádegi og dúllerí eftir hádegi :)....... svo þegar prófið er búið þá dembir mar sér í vinnu á milli þess sem mar nýtur þess að vera til !!!!
Síðustu dagar eru búnir að vera ekkert nema frábærir...... Andra minn átti 25.ára afmæli á þriðjudaginn og henti ég í eitt lítið surprise partý fyrir kallinn...... þegar hann mætti heim seint á þriðjudagskvöldið eftir að hafa verið að syngja á tónleikum þá tók á móti honum öskrandi fólk, blöðrur og kampavín.... mín henti einnig súkkulaði á jarðaber þannig að það var allt til alls og ansi mikið kampavín rann ljúft niður hjá okkur crewinu... Honum grunaði ekki neitt og ég ekkert smá sátt að þetta hafi tekist....!!!
En lífið heldur bara áfram að vera ljúft og er stefnan tekin á að byrja morgundaginn (laugardagur) með góðu kaffi, ristabrauði og ferskum ávöxtum niðri á hóteli, rölt um bæinn, allt of langt síðan að mar kíkti á strikið. Ætli stefnan verði svo ekki sett á Kongens Have að hitta skemmtilegt fólk og eiga enn annan sólardag saman....!!!! að vísu verður mar nú að vinna líka þannig að sunnudagurinn fer í það.... en eftir vinnu erum við hjúin plús önnur hjú að fara í sveitabíltúr til Odense......!!!
Þannig að núna er bara að njóta næstu tvo mánuði í BOTN og vera svo fersk og til í slaginn 28.júní þegar ég mun lenda á Fróni.
Ok... ég er bara leiðinleg að tala um hvað lífið er ljúft og þið sem eruð í prófum, ALVEG AÐ MYGLA, þá er ég búin að fara í gegnum þann skammt í bili og ég veit hvernig ykkur líður... ykkur mun sem sagt ekki líða betur eftir að hafa lesið þetta blogg... hehehe... en ef þið nennið ekki að fara að læra ALVEG strax þá hafið þið afsökun því að ég er búin að henda inn myndum..........
sjá undir Maí 2007

Hláturinn lengir lífið......
19. apríl 2007 klukkan 20:41
Það er naumast hvað mar finnur sér eitthvað annað að gera þegar mar á að vera að læra !!!
Tveggja vikna lokaverkefnaskrif eru komin í gang, skil þann 2.maí... þannig að það er eins gott að vera DUGLEGUR þangað til !!!
Það liggur við að sigga litla ég sé nýbúin að jafna mig á ferðalaginu og tímamuninum... hehe ég er svo mikill auli..... það er bara svo gott að sofa og ég bara ALGERLEGA snéri sólahringnum við...!! þannig að það þarf að skrapa mig upp með pönnukökuspaða á morgnana !!!
Annars setti ég inn myndir frá SVAÐALEGU tjútti frá því á laugardag...... það er langt síðan ég hef hlegið svona óskaplega mikið........... gleðin endaði ekki þar því á sunnudeginum var deginum eytt í góðra vina hópi í Kongens Have í SVAKALEGU sumarveðri..... þrátt fyrir ekki svo mikinn hressleika sem rekja mátti til kvöldsins áður þá var hann fljótt að hverfa vegna góðs veðurs og töku 2 í hláturskasti..... fólkið í kringum okkur var farið að STARA... ég er alveg viss um að það var bara öfundsjúkt og vildi reyna að vera með í gleðinni......
En back to writing.... nú er ég bara farin að teygja lopann ( svona eins og mamma manns sagði þegar mar var lítill og vildi ekki fara að sofa... hehe)
Sofið rótt og komið fljótt........

myndir
13. apríl 2007 klukkan 22:02
AIGHT...... búin að henda inn myndunum af skipinu og öllu því ævintýri.....
vonandi þið skemmtið ykkur vel við að skoða..........það er samt hættulegt að skoða þetta því manni langar bara að leggja af stað í ferðalag ....... !
Góða helgi
Ævintýrið búið.... í bili :)
11. apríl 2007 klukkan 23:30
Jamm og jamm og jú.......... Þá erum við komin heim úr landi offitu og ýkja.........
ÞESSI FERÐ VAR Í EINU ORÐI SAGT............ GEÐVEIK !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Byrjuðum í Miami þar sem hún Vilborg tók hlýlega á móti okkur ásamt herbergisfélögum sínum.... ég átti afmæli daginn sem við fórum þannig að vegna tímamismunar var þetta LENGSTI afmælisdagur sem ég hef átt...það var soldið gaman að eiga afmæli svona lengi.... afmælinu var fagnað með að fara á cheescake factory þar sem ég fékk STÆRSTU KÖKUSNEIÐ sem ég hef séð.... og auðvitað var byrjað á Strawberry Daiquiry
Við létum ekki ferðaþreytu á okkur fá og það var vaknað eldsmenna á föstudagsmorgninum og ég VARÐ að fara í TARGET (mörgum til mikillar undrunar) en VÁ.... þetta er GEÐVEIKISLEGA stór búð.. og ég skemmti mér konunglega að skoða allt sem þar var !! eftir Target þá drifum við okkur á SOUTH BEACH þar sem ARNAR kom alla leiðina frá Naples til að hitta ferðalangana..... við eyddum deginum í þessum frábæra bæjarhluta og hlustuðum á skemmtilegar sögur um ameríkana og upplifanir sem Arnar og Vilborg hafa lent í
Á laugardeginum var ekkert búið að versla þannig að við tókum power-shopping fyrir hádegi áður en við lögðum af stað til Fort Lauderdale...................
Í Fort Lauderdale hittum við fjölskylduna hans Andra sem komin var í mollið, auðvitað...hehe..... það var ekkert hægt að stoppa shopping-spreeið þannig að það var haldið áfram og gott ef ekki þá flugu nokkrir peningarnir þar
Nóg um Mollin og yfir í SKIPIÐ.............................. það var ekkert nema PARADÍS............ frábær leið til að eyða fríinu sínu..... það var ekki einn hlutur við þetta blessaða skip sem hægt var að finna að!!! mar gat etið ALLAN daginn.... alltaf legið í sólbaði...... káetan var yndisleg.... rúmið BARA ÞÆGILEGT!! Starfsfólkið yndislegt og síðast en ekki síst þá var veðrið FRÁBÆRT.... sem betur fer var ALLTAF gola þannig að mar var ekkert að deyja úr hita þrátt fyrir yfir 35° uppá hvern einasta dag !!!
Við stoppuðum á þremur eyjum og það var eins og að labba inn í bíómynd
önnur eyjan var, ST.LUCIA þar fórum við Andri á lítinn bát sem sigldi með okkur LENGST í burtu og stoppað svo in the middle of nowhere þar sem var farið að SNORKLA.......
á þriðju eyjunni, ST.MARTEEN fórum við með leigubíl yfir á franska hluta eyjunnar (hinn hlutinn er hollenskur) og fórum á FLOTTUSTU STRÖND EVER og eyddum deginum þar.... PANT eiga heima þar !!!!!
síðustu tveir dagarnir á skipinu fóru svo bara í að slappa af og reyna að ná í smá brúnku... það gengur aldrei vel hjá albínóanum mér !
En jæja....... þá er sólarsagan sögð í grófum dráttum... myndirnar segja söguna betur og er ég búin að henda inn myndum frá Miami.... nú er klukkan orðin hálf tvö og ég nenni ekki að setja inn myndirnar af skipaævintýrinu en þær ættu að koma inn á morgun eða föstudaginn
og trúið mér það eru sko MARGAR myndir þannig að þið getið byrjað að hlakka til, híhí ;)
Ykkar sigga.... sem er byrjuð að flagna ..............
ÞESSI FERÐ VAR Í EINU ORÐI SAGT............ GEÐVEIK !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Byrjuðum í Miami þar sem hún Vilborg tók hlýlega á móti okkur ásamt herbergisfélögum sínum.... ég átti afmæli daginn sem við fórum þannig að vegna tímamismunar var þetta LENGSTI afmælisdagur sem ég hef átt...það var soldið gaman að eiga afmæli svona lengi.... afmælinu var fagnað með að fara á cheescake factory þar sem ég fékk STÆRSTU KÖKUSNEIÐ sem ég hef séð.... og auðvitað var byrjað á Strawberry Daiquiry

Við létum ekki ferðaþreytu á okkur fá og það var vaknað eldsmenna á föstudagsmorgninum og ég VARÐ að fara í TARGET (mörgum til mikillar undrunar) en VÁ.... þetta er GEÐVEIKISLEGA stór búð.. og ég skemmti mér konunglega að skoða allt sem þar var !! eftir Target þá drifum við okkur á SOUTH BEACH þar sem ARNAR kom alla leiðina frá Naples til að hitta ferðalangana..... við eyddum deginum í þessum frábæra bæjarhluta og hlustuðum á skemmtilegar sögur um ameríkana og upplifanir sem Arnar og Vilborg hafa lent í
Á laugardeginum var ekkert búið að versla þannig að við tókum power-shopping fyrir hádegi áður en við lögðum af stað til Fort Lauderdale...................Í Fort Lauderdale hittum við fjölskylduna hans Andra sem komin var í mollið, auðvitað...hehe..... það var ekkert hægt að stoppa shopping-spreeið þannig að það var haldið áfram og gott ef ekki þá flugu nokkrir peningarnir þar
Nóg um Mollin og yfir í SKIPIÐ.............................. það var ekkert nema PARADÍS............ frábær leið til að eyða fríinu sínu..... það var ekki einn hlutur við þetta blessaða skip sem hægt var að finna að!!! mar gat etið ALLAN daginn.... alltaf legið í sólbaði...... káetan var yndisleg.... rúmið BARA ÞÆGILEGT!! Starfsfólkið yndislegt og síðast en ekki síst þá var veðrið FRÁBÆRT.... sem betur fer var ALLTAF gola þannig að mar var ekkert að deyja úr hita þrátt fyrir yfir 35° uppá hvern einasta dag !!!
Við stoppuðum á þremur eyjum og það var eins og að labba inn í bíómynd
HVÍTUR SANDUR og HIMINBLÁR SJÓR
á fyrstu eyjunni, ST.KITTS þá fórum við í skoðunarferð um eyjuna og hlustuðum á sögu eyjunnarönnur eyjan var, ST.LUCIA þar fórum við Andri á lítinn bát sem sigldi með okkur LENGST í burtu og stoppað svo in the middle of nowhere þar sem var farið að SNORKLA.......
á þriðju eyjunni, ST.MARTEEN fórum við með leigubíl yfir á franska hluta eyjunnar (hinn hlutinn er hollenskur) og fórum á FLOTTUSTU STRÖND EVER og eyddum deginum þar.... PANT eiga heima þar !!!!!
síðustu tveir dagarnir á skipinu fóru svo bara í að slappa af og reyna að ná í smá brúnku... það gengur aldrei vel hjá albínóanum mér !
En jæja....... þá er sólarsagan sögð í grófum dráttum... myndirnar segja söguna betur og er ég búin að henda inn myndum frá Miami.... nú er klukkan orðin hálf tvö og ég nenni ekki að setja inn myndirnar af skipaævintýrinu en þær ættu að koma inn á morgun eða föstudaginn
og trúið mér það eru sko MARGAR myndir þannig að þið getið byrjað að hlakka til, híhí ;)Ykkar sigga.... sem er byrjuð að flagna ..............