hæ elskan, gaman að sjá að það er alltaf stuð á bænum ;-)
var að svara meilinu, við heyrumst svo bráðum honey.....
knúúúzzzzz
how about that !!
29. janúar 2008 klukkan 23:23
Svei mér þá þetta er ekki hægt sko.... mar kominn með nýtt blogg og nýja myndasíðu og svo bara gerist ekkert hjá mér.... þetta er alveg hreint til skammar....!!! En nú er bót í máli og er ég búin að setja inn FULLT af myndum....!!!
Þessi janúarmánuður er búinn að vera frekar svona strembinn en auðvitað gott og auðvelt inn á milli eins og kannski myndirnar sýna...

Ég skilaði stóru verkefni 8.janúar og í kjölfarið af því var partý hjá Service Management nemendunum í skólanum. Það var góð stemmning og alltaf gaman að kynnast frábæru fólki svona akkúrat á endasprettinum.. hehe alveg týpískt..!!
Eftir þetta tók við vinna, lærdómur og hreingerningar í kotinu þar sem ekki var búið að gera neitt mjög mikið síðan fyrir jól....!!! En tjúttið var ekki langt undan og vorum við nokkur í bekknum sem hittumst og borðuðum geggjaðan lax með öllu tilheyrandi sem ein stelpan hristi fram úr einari...!! (nota bene.. borða ALDREI LAX og finnast hann EKKI góður... en þarna gúffaði ég í mig eins og ég hefði aldrei fengið að borða áður..... og hann var sjúklega góður!!)
Daginn eftir þetta frábæra matarboð sem endist nú til alltof lengi með kokteilum í bænum þá skelltum við hjúin okkur til Íslands...!! þegar Express er með tilboð þá var nú ekki hægt annað en að skella sér að sjá litlu frændur sína og kíkja í eitt stykki útskriftarveislu hjá Guðríði vinkonu....!!
Við ákváðum að segja engum frá því að við værum að koma heim því ferðin var MJÖG stutt og enginn tími til að hitta alla...!!! surpræsið tókst allt saman vel og fólk varð ansi hissa... þó svo að sumir hverjir hafi nú þótt ekkert sjálfsagðra en að mæta í útskriftarveisluna.. hehehe !!!
En eftir Ísland þá tók við enn meiri lærdómur þar sem ég fór í próf í gær....... nú er það loksins búið og komin svona oggupínsu kyrrð yfir mig.....!! Það er alltaf nóg að gera en það er alltaf betra að hafa ekki próf svona hangandii yfir sér.... :)
En.. gott í bili... fullt af myndum en bara að láta ykkur vita að þær koma í öfugri röð... og spare with me people... ég veit að ég er á ansi mörgum myndum en svona er þetta bara þegar myndavélin er komin á loft og stuðið farið að renna í blóðinu.. ég ræð bara ekkert við þetta...!!!

laterz
Harpa Vífils
#2
01. febrúar 2008 klukkan 20:42
Hæhæ takk fyrir seinast sæta:) Hlakka til að koma í heimsókn í lok mars. Flottar myndir:)
#3
02. febrúar 2008 klukkan 01:30
Ástdís
Hellú og sorrý með mig hvað ég er alltaf léleg að kommenta hjá þér......mér finnst bara skemmtilegra að hringja í þig og spjalla!!;) Hlakka til að heyra í þér næst og að ég tali nú ekki um þegar ég kem út tll þín/ykkar!!!
ciao í bili...
ciao í bili...
#4
04. febrúar 2008 klukkan 22:01
Gurrý
Sælar.....
hvernig er það.....er engin færsla á leiðinni..?..;)
Miss u
hvernig er það.....er engin færsla á leiðinni..?..;)
Miss u
#5
13. febrúar 2008 klukkan 10:54
vilborg
frábærar myndir! það hefur aldeilis verið huggulegt hjá ykkur úti um jólin.
knús og kram til ykkar, frábært að hafa óvart náð í skottið á ykkur hérna um daginn
xxx
knús og kram til ykkar, frábært að hafa óvart náð í skottið á ykkur hérna um daginn
xxx
#6
15. febrúar 2008 klukkan 00:04
Hrund
Á ekki að fara að skella inn nýju bloggi, við stelpurnar erum byrjaðar að telja niður:)
#7
17. febrúar 2008 klukkan 22:42

Ég er svo eftir á að ég vissi ekki einu sinni að þú værir búin að taka þig á í blogginu!
gaman að lesa nýjustu fréttir, svo langt síðan maður hefur heyrt í ykkur
og já....við þurfum að plana skype hitting svo maður geti planað alles. jafnvel um helgi þegar þú ert heima svona að deginum til eða eitthvað? finnum út úr því
annars söknum við ykkur alveg hellings!!! og ég allavegana sakna dk alveg í og með (þó það sé rosalega skemmtó að prófa eitthvað algjörlega nýtt hérna úti!).
xxx