Aðalvalmynd

ég fer í fríið... ég fer í fríið ... ég feeeeer í fríið

28. maí 2008 klukkan 11:31
Búin að skila.... komin til London... er á leiðinni til TENERIFE :)

Lífið er ljúft og það er ólýsanleg tilfinning að vera laus úr prísundinni !!!

Næsta færsla verður frá vonandi mjög svo tannaðari siggu Svalur

Hafið það gott

mar verður soldið súr í hausnum eftir langa inniveru fyrir framan tölvuna!!

18. maí 2008 klukkan 22:52
Já.... ekki mikið að gerast hér get ég sagt ykkur......

Læri læri læri... það er ekki einu sinni tími til að skrifa á bloggið Hissa

Ætla ekki að fara neitt í neina djúpar útskýringar hér aðrar en þær
að það er akkúrat vika í skil...... ætla samt að gerast svo bjartsýn
að vera búin með þetta á fös... nú eða kannski lau... og prenta á
sun...!!! skila á mán.... london á þrið.... tenerife á mið.....
og já...... bara rétt rúm ein vika í það að mar liggi flatmaga
á TENERIFE að gera akkúrat ekki neitt nema það að snúa sér yfir á hina..!
það er tilhugsunin um þetta sem heldur mér á lífi þessa dagana....!!

ekki meira frá bændum í þetta skiptið.... megið þið hafa það gott

góða nótt

tæp á geði?!?!?!

30. apríl 2008 klukkan 17:14
Tími á nýtt blogg..... já er haggi...!!!! og líka að fá sér smá frí frá verkefnaskrifum!!!

Þannig er mál með vexti að nú er allt á fullu með lokaverkefnið.....!! Sit á bókó í CBS ALLANN DAGINN ALLA DAGA að skrifa skrifa skrifa...!! þetta gengur svona upp og ofan... merkilegt hvernig dagsformið getur verið misjafnt... einn daginn skrifar mar 5 bls og annan daginn skrifar mar hálfa !!! alveg MAGNAÐ...!!

Annars skifaði ég plan... hvað ég þyrfti að gera á hverjum degi... það gengur ágætlega að fara eftir því.... það eru líka frídagar þar inní.. eins og föstudagurinn var frídagur....!! Ástæðan fyrir því er sú að BO HALLDÓRS var með stórtónleika í Köben á fimmtudaginn síðasta.... Ekki hafði ég nú miklar væntingar... langaði meira að segja ekki svo mikið að fara.... EN VITI MENN... stemmningin var ROSALEG... Dansaði af mér lappirnar.. bókstaflega var á gólfinu í 3 klst held ég... SHAKIN' DA BOOTY.... :) það var margt um manninn... BO var með allskyns hjálparhellur þarna á sviðinu... hver stjarnan á fætur annarri tróð upp...!!! Eftir ballið var haldið út á plan þarna fyrir framan... þar sem við stóðum vinahópurinn að ná okkur niður eftir skemmtunina þá kom hver "stjarnan" á eftir annarri út úr byggingunni og okkur fannst MEGA DÚTÍ spennandi að smella nokkrum myndum af þeim með okkur..!!! Daginn eftir þegar ég skoðaði myndavélina þá hristi ég nú hausinn og hugsaði með mér að þetta væri nú ekki alveg besta múvið sem mar hefur tekið í gegnum tíðina....!! en þá kom fanney með besta kommentið sem var það að úr því við ættum heima í DK þá væri þetta allt í lagi!! Ég ætla að trúa því...!!! þetta minnti mig bara óstjórnlega á dagana okkar Guðríðar í Úthlíð þegar við vorum um 13og14 ára gamlar og yfir okkur spenntar yfir sveitaballa stjörnunum sem komu þangað.... HEHEHEHE Svalur

Anywho.... já skrifi skrifi skrifi....!!! á komandi helgi eru líka planaðar einhverjar pínu frístundir.. ástæðan fyrir því er koma Sasa bró. Hann ætlar að koma og fá að lúlla í kotinu hjá siggu syss... efast ekki um annað en að það eigi eftir að vera huggó ..!!! Andri verður fjarri góðu gamni þar sem ég gaf honum í afmælisgjöf af kíkja á Jóa vin sinn á Girona á Spáni! Hann á afmæli á morgun og flýgur þangað á morgun !! deginum fögnum við saman í fyrramálið með góðum morgunmat áður en hann fer í flug og gamla á bókó!!

Svona er lífið í Köben þessa dagana.... margt og mikið að gerast eins og alltaf.. allt ekkert jafn skemmtó en hver sagði að lífið væri tóm skemmtun...!!! Rúsínan í pylsuendanum er bara sú að eftir AKKÚRAT mánuð verð ég á leiðinni til London að pikka upp hannes bróður og förum við svo til TENERIFE að hitta familíuna...!! Ekki nóg með það þá er búið að kaupa við til MALASÍU og er brottför þann 7.júlí og heimkoma þann 4 ágúst !!!! VÚBBÍ DÚ !!!!!! búið að fá fyrsta umgang af sprautum gegn öllum fjandanum og verið í gangi að redda vegabréfum inní Cambódíu og Víetnam... Gæti þetta orðið meira spennandi !!!!! ?!?!?!?!?!?!


Takk í bili og megið þið góðu vinir hafa mig í bænum ykkar... biðja fyrir því að ég fari ekki á geði í þessum verkefnaskrifumm.... það tekur á geðið að sitja inni á bókó þegar það er 20 stiga hiti og glampandi sól úti og hver vinur á eftir öðrum að hringja og athuga hvort mar ætli nú ekki að kíkja út í góða veðrið... Óákveðinn

-SIGGS

HEY by the way.... myndir af því þegar mútta var í heimsókn... myndir frá BO Halldórs og svo staffatjútt!! tjek it out :)

Bissí bissí

19. apríl 2008 klukkan 21:46
Allebadderí fransí, koppur undir rúmi til að pissa í .....!!!!   já svei mér þá hvað hefur barasta ekki drifið á daga mína síðustu vikurnar..!!!

Síðan að stelpurnar fóru þá er búið að vera GEGGJAÐ að gera og er liggur við aldrei dauð stund hjá minni !!!

Ég skrapp heim í viku til þess að vinna fyrir SagaFilm og var það vægast sagt ÆÐISLEGT !!  það var frábært að koma heim og hitta fólkið og VINNA VINNA VINNA ...!! ég var alveg í S-inu mínu þarna í vinnunni og sýndi sko mínar bestu hliðar og svei mér þá kom sjálfri mér á óvart hversu dugleg ég er í þessum geira ..!! en eins og máltækið segir.. "maður uppsker eins og maður sáir" á vel við því mér var boðin GEÐVEIK vinna áður en ég flaug aftur hingað út. Því miður þurfti ég að neita þar sem skólinn verður víst að ganga fyrir þessa dagana því það er SVO lítið eftir og ég get ekki farið að klúðra skólanum svona á endasprettinum !! En það að hafa verið boðin þessi vinna er ekkert nema ótrúlegt og get ég svei mér þá verið þokkalega stolt af sjálfri mér... og það kæru vinir get ég sagt ykkur að er góð tilfinning :)

Annars kom ég aftur hingað út á mánudaginn (14 apríl) og þá tók nú við svefn... (ég varð að bæta upp fyrir ansi fáar klukkutstundir sem ég svaf á meðan ég var heima sökum vinnu.... en það þýddi nú ekkert að eyða of miklum tíma í að sofa því lokaverkefnið beið mín og þar sem það eru 6 vikur í skil þá var nú betra svona að byrja á þessu blessaða verkefni...!! það er nú komið í gang til allrar hamingju... :) en þrátt fyrir það þá tók ég mér nú frí frá skrifum í gær og í dag þar sem hún mútta er á svæðinu :) Við skvísurnar skelltum okkur til Malmö að shoppa í gær og það var BARA ÆÐI !! svo var ég búin að plana stelpukvöld og fór ég með hana út að borða og svo á Ísbarinn á hótelinu mínu ... !! svo enduðum við kvöldið auðvitað á barnum í vinnunni þar sem við mæðgurnar skáluðum í kokteil og rifjuðum upp gamla tíma Hlæjandi
Deginum í dag var svo eytt á Strikinu í GEÐVEIKU veðri og ekki leiðinlegt fyrir múttu að eyða afmælisdeginum sínum hérna í baunalandinu...!!! í kvöld fórum við svo á ótrúlegan veitingastað og ég er ekki frá því að við fengum besta mat sem ég hef smakkað og þá bestu þjónustu sem ég hef upplifað ...!!! Brosandi

Nú fara huggulegheitunum að ljúka í bili og við tekur frekar BISSÍ vika.... BÓKASAFNIÐ.... VINNA... BÓKASAFNIÐ....Tónleikar með Bjögga Halldórs í cirkus byggingunni... BÓKASAFNIÐ....VINNA.... Innflutningspartý.... COWBOY/GIRL þema partý.... BÓKASAFNIÐ ......

jamm og jamm og jú... svona er lífið hjá siggunni í Köben.... múttan yfirgefur svæðið á morgun... Sasi bróðir er væntanlegur í byrjun maí... Harpa og Árni mæta á svæðið í maí einnig og svo verður mín bara búin að skrifa lokaverkefnið og farin til London og Tenerife áður en mar veit af...!! Dagarnir fljúga gjörsamlega frá mannig og það er EINS GOTT að halda vel á spöðunum svo mar geti nú klárað skólann með stæl...!!

Þessum skrifum vil ég svo ljúka með þessum bút sem Andri rakst á og sendi mér.... honum finnst þetta eiga eitthva svo vel við mig....   lesið og dæmið nú sjálf:

Yngsta barnið (örverpið)
Jákvæðir eiginleikar: Yngstu börnin eru í raun klappstýrur heimsins. Þau hafa sérlega góða hæfileika í mannlegum samskiptum og þau elska að skemmta öðrum og tala við annað fólk. Þau eiga auðvelt með að kynnast nýju fólki og eiga mjög auðvelt með að láta fólki finnast það velkomið. Þau þrífast vel í stórum hópi og eru hrókar alls fangaðar og eru ekki hrædd við að taka áhættu.

Neikvæðir eiginleikar: Þau verða fljótt leið og eiga stundum erfitt með að halda sig við eitthvað eitt ákveðið í langan tíma. Að vissu leiti eru þau mjög sjálfhverf. Þau hafa t.d. mjög óraunhæfar væntingar til makans og ætlast til þess að sambandið sé eintóm gleði en að sjálfsögðu er lífið ekki þannig. Þolinmæði er ekki sterkasti eiginleiki yngsta barns.

 

(Fyrir þá sem ekki vita þá er ég yngsta barnið í fjölskyldunni)


ammlibloggið

31. mars 2008 klukkan 21:43
VÁ ÉG VAR BÚIN AÐ SKRIFA GEGGJAÐ BLOGG OG ÝTTI SVO EITTHVA VITLAUST... og það hvarf.... Fýldur

en... þá er bara að byrja uppá nýtt....!!!!

Eins og einvherjir vita þá var afmælið mitt jú á laugardaginn .... eins og það hafi ekki verið nógu skemmtilegt þá var ég líka að klára próf á fimmtudaginn OG skvísurnar Anna, Hrund og Ástdís mættu á svæðið til að fagna með mér afmælinu !!!! Hlæjandi

Eftir að hafa skálað í einum köldum með bekkjarfélögunum eftir prófið dreif ég mig heim til þess að setja heimilið í stand til þess að taka á móti stelpunum.....!!! það RÉTT hafðist og sýndu stelpurnar loksins sitt fríða fés eftir ansi langþráða bið...!!!!!! Ég get svarið það ég var alveg með fiðrildi í maganum yfir komu þeirra !!!!

Auðvitað tók við spjall langt fram á nótt og margt og mikið sem þurfti að ræða....!!!! og þrátt fyrir ekki mikinn svefn var nú vaknað á góðum tíma til þess að getað farið í "shop 'til you drop" ferð í Fields Hlæjandi sú ferð tókst alveg með ágætum og það þurfti sko að hvíla lúin bein þegar heim var komið og áður en haldið var út að borða...!!!! Ég fór með stelpurnar að borða á www.customhouse.dk þar sem við fengum besta borðið á svæðinu.... kampavín við komu á staðinn og alles... Ekki nóg með að við höfum litið út eins og drottningar þá vorum við sko trítaðar sem slíkar !!!! Eftir geggjaðan mat og að hafa setið þarna í 3og hálfan tíma var leiðinni haldið niður í vinnu og á kokteilbarinn þar....!!! þar héldu höfðinglegu móttökunum áfram, kampavín fyrir skvísurnar í tilefni komandi afmælis og meira að segja lítil og sæt afmæliskaka frá starfsfélögunum Brosandi Eftir frábært kvöld var haldið heim á leið á semí skikkanlegum tíma og haldið áfram spjallinu og hláturskastinu heima áður en síðan gjörsamlega slokknaði á okkur !!

Afmælisdagurinn sjálfur byrjaði síðan með morgunmati í rúmið, ristabrauð og kók.... (hefði sko ekki getað verið betra....) opnaðir pakkar og hlegið af kvöldinu áður ..... en ekki þýddi nú bara að vera í rúminu allan daginn, ALLS EKKI, og haldið var niður á Strik... sökum vonds veður og kannski bara "pínu" þreytu þá var hoppað inná kaffihús :) þar var setið og hlegið mikið og heiðruðu Davíð og Gerður okkur með nærveru sinni alla leið frá Árósum Svalur

Eftir spjalleríið og óvenju gott Coca Cola ;) þurfti nú að drífa sig heim til að gera sig reddí fyrir afmælisveisluna. Andrinn var búinn að græja og gera svo að það væri nú hægt að halda partý til heiðurs skvísunni Hlæjandi Gestirnir byrjuðu svo að streyma inn og áður en ég vissi af þá var fullt hús og tónlistin komin í botn... fólk byrjað að dansa í stofunni og þvílík gleði réði ríkjum Brosandi ég staldraði oft við og kíkti í kringum mig og hugsaði nú hvað ég væri heppin að eiga svona mikið af góðu fólki í kringum mig sem heiðraði mig með nærveru sinni hérna í kotinu Hlæjandi Ég hugsa að fólk hafi almennt skemmt sér einkar vel og þrátt fyrir gott partý þá fannst okkur skvísunum að við þyrftum nú að láta sjá okkur í bænum og dilla okkur aðeins...!! leiðin lá á einn af klúbbunum þar sem við sýndum gamla takta á dansgólfinu Koss

Sunndagar til sælu var síðan tekið bókstaflega og var deginum eytt í hygge hygge og aftur hygge...!!! en við vorum nú ekki búnar með spjall kvótann þannig að aftur var tekið spjall undir morgun.... Ég verð að játa að þreytan sagði til sín í morgun og tók smá tíma hjá okkur að setja í gírinn...!!! En eftir að hafa kíkt með stelpurnar niður á Strik til þess að þær gætu eytt síðustu krónunum skildi ég við þær á hovedbane með skeifu og ekki frá því að vera pínu leið !!!! því nú tekur raunveruleikinn aftur við.... læra og vinna....!!!


En.... Þetta var án efa einn besti afmælisdagur sem ég hef átt... og bara með þeim bestu helgum sem ég hef átt....!!!! þetta var bara geggjað í alla staði.... og pottþétt helgi sem að verður lengi hugsað um og hlegið að Hlæjandi

Orð helgarinnar: ALLS EKKI vs. Feita Feitudóttir
Orð sem aldrei verður sagt aftur: Æ Æ Æ
Lag helgarinnar: B I B L Í A ..... (jamms ekki spyrja....)!!!
Verðlaun helgarinnar fær Andrinn fyrir að sýna einstaka þolinmæði í kringum 4. háværar, talandi fram á nótt skvísur :) ... fyrir að hafa séð um okkur, passað nú upp á það að við fengjum að borða og að afmælisgestir gætu komið í hreina og fína íbúð og jú auðvitað fyrir eina bestu afmælisgjöf sem ég hef fengið Hlæjandi


Næsti áfangastaður er rúmið og mun ég sofna með STÓRT BROS á vör.....

þið sem lásuð þetta allt saman..... vona að þetta hafi verið góð frásögn og þið sem ekki voruð á staðnum getið séð myndir af herlegheitunum og fengið smjörþefinn af því sem fór fram um helgina Svalur

læri læri læri lær...

19. mars 2008 klukkan 11:52
já hva segið þið... partýveikin.. hún er skemmtileg..!! Bakterían þurfti samt að víkja því nú er það harkan 6 í lærdómi.. og partýveiki og lærdómur fer ALLS ekki saman.. eins og kannski flestir vita..!!!

Síðustu dagar eru búnir að fara í það að REYNA að læra.. verð að játa að það gengur barasta ekki svo vel :/ jú og svo auðvitað þarf mar að vinna líka... það er engin miskun þó svo mar þurfi að sinna lærdómnum...!!

8 DAGAR í prófið... 8 dagar í að stelpurnar komi til mín... 10 dagar í að ég verði 24 ára.... og svona mætti lengi telja skemmtilega hluti sem eru á dagskránni... Svalur ég er búin að hlakka SVO MIKIÐ TIL að stelpurnar komi til mín að ég held að ég fái bara spennufall þegar þær loksins koma.... eigi eftir að detta niður bara dauð af spennu og verð svo hundleiðinlega sigga þegar þær mæta á svæðið.... NEI DJÓK... það gerist nú alveg örugglega ekki.. ég get örugglega reynt að næla mér í partýveikina aftur þá helgi sem þær koma Glottandi Svo er mín barasta að koma heim 6.apríl.... gamla bara að koma heim í viku vinnuferð...!! ákvað loksins að segja já við þau hjá SagaFilm að koma heim og vinna í nokkrum verkefnum... það verður sko EKKI LEIÐINLEGT.. að vísu þýðir þetta vika minna í að vinna í lokaverkefninu mínu en þá endurtek ég bara mín uppáhalds orð... FOKK IT...!! er haggi attitudið sem mar á að hafa þegar mar er ALVEG að verða búin með skólann..... hehe...!! það er að virka bara ágætlega vel ... svo sjáum við nú hva einkunnirnar segja þegar ég útskrifast í júní.... Öskrandi
Hlakka MIKIÐ til að koma heim og hitta eitthva af elsku fólkinu mínu heima á klakanum... eins og til dæmis litlu krúsídúllunni hennar Möggu systur... Bjarki már er orðinn SVO STÓR og það er svo ógisslega skrýtið að elsku besta systir mín í öllum heiminum eigi barn sem ég þekki bara eiginlega ekki neitt... svo skoða ég myndir af honum og ég horfi á hann bara.. "hmmm who are you???" kvíði mest fyrir því ef krakkarúsínan eigi eftir að fara að grenja þegar ég fer eitthvað að gúa gúa í honum.. það færi nú alveg með mig.... Óákveðinn Ég vil bara vera sigga ógisslega skemmtilega klikkaða frænkan sem kemur í heimsókn og spillir börnunum og fer svo aftur... hehe foreldrunum til mikillar gleði... Glottandi

Jæja... nú sit ég hérna í CBS að reyna eitthva að læra.... smá útúrdúr með því að byrja að skrifa á bloggið.... en annað eins hefur nú gerst...!! Ætla nú samt að demba mér aftur í það að lesa um organisational design/structure, leadership in organisations, motivation theories og fleira MEGA skemmtilegt í þessum dúr... Óákveðinn Hey já eitt annað... það er kominn 19mars og hér í kaupmannahöfninni er hvít jörð... það er búið að snjóa ekki eðlilega mikið.... þetta er voða krúttó veður... snjór, sól og ekkert voðalega kalt... en COME ON... það er MARS.... og á sunnudaginn var ég hjólandi á peysunni og dustaði rykið að sólgleraugum og hugsaði með mér að nú væri sko sumarið að koma... ALDEILIS EKKI..... !!! svona geta hlutir komið aftan að manni...

farin að læra....

P.S. einn kokkurinn í vinnunni var að hætta þannig að eftir vinnu á föstudaginn ákváðum við að skella okkur yfir á ísbarinn í "einn kaldann". Skellti nokkrum myndum inná myndasíðuna... þannig að þið getið fengið smá innsýn í vinnuna mína.. og kollega :)


Partýveik??

04. mars 2008 klukkan 22:40
OG hva???? hvenær er mar þá orðin of gamall fyrir partýstand ???? ..... altså det ved jeg ikke...!!
partýveikin er búin að vera mér ofarlega í huga síðustu daga..... veit ekki hvort mar geti tekið einhver lyf við þessu.... veit ekki hvort þetta sé vandamál eða hvort þetta sé bara danmark í dag...!!!
hef spurt ýmislegt fólk að þessari veiki......  ég meina ég á ekki börn og er ekki gift en var samt komin með pínuáhyggjur af partýveikinni.... tala við svo marga heima á klakanum sem segja að þeir hafi ekki farið á tjúttið svo vikum skiptir... svo líður varla helgi án þess mar kíki út...!!! Ég vil kenna vinnunni um þetta.... mar er að vinna og vinna og vinna...brjálað að gera... og svo þegar mar er loksins búinn í vinnunni þá er stemmarinn ansi mikill í að fara yfir á kokteilbarinn á hótelinu og fá sér eins og einn frískandi ávaxta sykur drullu hrærðan með muldum ís í góðra vina hópi... Svalur svo koma hlutir eins og þorrablót, fagna ýmsum áföngum hjá vinum eða Andranum mínum...(hann er einmitt kominn með geggjaða vinnu og er að byrja á morgun....Hlæjandi!!)(svo er Haffi klipparinn er á leiðinni á topinn og verður svo eftirsóttur að ég mun varla komast að hjá honum....Hissa) svona hlutum fagnar mar..... svo ekki sé meira sagt en mar kemur til íslands til að vera viðstaddu útskrift vinkonu sinnar... Glottandi

Svo þegar fólk er að fara á tjúttið og gamlan (ég)  kem með þau mótmæli að mar sé nú orðinn of þreyttur og gamall fyrir að vera svona úti eftir miðnætti þá fæ ég illt auga.... er með þeim yngstu í þeim mismunandi vinahópum sem mar er með hérna úti....... hehe það þarf ekki mikið til að tala mig til... það er alveg á hreinu !!

Annars kíkti ég til ODENSE í dag með skólanum... fórum á fyrirlestur um E-marketing og Distribution... það var hressandi...! keyrt var í glampandi sól og þvílíkt fallegu veðri yfir á Fjón... tilbaka var keyrt í einum mesta jólasnó sem ég hef séð lengi..!!! átti gott spjall við bekkjarfélaga minn um partýveikina og hann kom með BESTU SVÖR sem ég hef heyrt.... kannski af því að þetta voru svörin sem ég vildi heyra... hehehe í stuttu máli sagt þá sagði hann að þetta væri nú endaspretturinn á tjúttitímabilinu.... ef mar á ekki að vera tjúttandi núna hvenær þá.....!! eftir ekki svo langan tíma verða væntanlega komin börn.... mar verður búinn að gifta sig og mar verður kominn yfir þrítugt áður en mar veit af... og þá nennir mar ekki þessu standi lengur.. það verður ekki svo að mar geti það ekki.. ég einmitt held að þá nennir mar þessu ekki....!! Við töluðum um að af hverju einmitt ekki djamma þegar mar nennir og hefur getu til....
          ég verð að segja að ég sé sammála..... það eru væntanlega margir ósammála... en af hverju ekki að hafa gaman núna...??? hvenær annars......!! svo lengi sem að þetta er gaman og þetta kemur ekki niður á einu né neinum þá held að partýveikin hún renni af manni þegar það er komin tími til að hún renni af...... þó ég eigi brátt afmæli þá er ég bara að verða 24 !! ekki 42...!! Ullandi

Ekki það.... eftir næstu helgi þá liggja fyrir rúmlega tvær vikur með LÆRDÓMI jóns fitness og vinnu... páskafríið verður með öðru móti þetta árið en það í fyrra... í fyrra lágum við í karabíska hafinu sælla minninga... þetta árið er læri læri læri.... vinni vinn og rækta líkamann... kannski svona eitt páskaegg ef svo vel vill til að mar fái íslenskt páskaegg... Hissa

gott ef ekki þá er þetta gott í bili..... augun eru farin að síga... en svona rétt áður en ég kveð þá vil ég benda á flickr.com/siggahp er búin að henda fleiri myndum inn...  (eru í öfugri röð.. klikka alltaf á þessu)

P.S hitti perrine og Manu (fólk sem ég hef ekki hitt í 6 ár og var með í spænskuskóla á mínum yngri árum... þau kíktu tol köben um helgina og SJITT hvað það var fyndið að hitta þau.... mér finnst ég hafa breyst svo mikið en þau barasta ekki neitt....... hehehe kannski hefur mar barasta EKKERT breyst....)

Góða nótt

-siggemus

Já sææælll !!

25. febrúar 2008 klukkan 00:10
Enn önnur vikan á enda komin !!! Hvernig er það...... tíminn líður svo hratt að það er skuggalegt....!! Það hentar fínt að tíminn líði svona hratt því það eru svo skemmtilegir tímar framundan :) en á sama tíma þá er próf framundan og lokaverkefnið mitt og ekki er ég nú byrjuð að undirbúa fyrir það þannig að þá er soldið óhuggulegt að tíminn skuli þjóta svona frá manni !!!!

En það er nú örðuvísi með þessa viku en þá síðustu því þessa vikuna var svei mér þá bara NÓG að gera.... merkilegt hvað mar hefur mikla meira orku þegar það er nóg að gera !!!!!  búið að vera brjálað að gera í skólanum og vinnunni en ég hef aldrei jafn mikla orku í kroppnum og þegar það er nóg að gera.. :)

Svo var þorrablótið fræga haldið með pompi og pragt í gærkvöldi og  auðvitað skellti mar sér á það..!! Því miður var Andri fárveikur heima þannig að hann komst ekki með...!!! Ekki voru margir mætti á blótið en við vorum stór hópur sem mættum saman þannig að við skemmtum okkur bara þokkalega  :) 

já og viti menn ég er búin að henda inn myndum !!!! bæði frá þorrablótinu og einu öðru tjútti ;)

Vona að þið hafið átt góða helgi og megið þið eiga yndislega viku ;)  og njótið þess að vera til...

farin að einbeita mér að horfa á fólkið á rauða dreglinum og láta mig dreyma að einn daginn mun ég vera svona GLAMOROUS !!!!   Gráðugur

þið báðuð um blogg... og þá fáið þið líka blogg ;)

18. febrúar 2008 klukkan 15:19
jújújú ég er barasta alltaf að skrifa.... rosa öflug í blogginu ;)

Ég er bara búin að vera svo ROSALEGA UPPTEKIN.......... við að gera eiginlega bara ekki neitt!!!
Þannig er mál með vexti að ég var í vetrarfríi í síðustu viku...... eins og svo oft áður þá var ég þokkalega
búin að ákveða hvað ætti að gera í þessu fríi.... þrífa, læra, taka til, sortera ýmislegt dót, taka til í skúffum og skápum... jújú bara svona hlutir sem mar gerir þegar mar er í fríi ekki satt....!!!!!

hmmmm... ég gerði barasta EKKERT af þessu..... HEHEHEHEHEHE !!! Ég var LÖT.is en var ýkt dugleg að sofa út, hanga, spila í  PS2, knúsast, vinna, fara í ræktina og kíkja út með vinunum, taka á móti Hönnu Lilju og hundinum sem hún var að passa (sem by the way pissaði og kúkaði á gólfið hjá mér... hehehehe!!!)
bjóða í sushi, elda geggjaðan mat handa sæta manninum mínum og jámmm... bara hafa það frekar huggulegt.. fyrir utan CRAZY samviskubits sem ég fékk á hverju kvöldi eftir að hafa ekki gert neitt af hlutunum sem voru á listanum... !!!!!

Svona eru nú síðustu dagar búnir að vera..... nú er lokaspretturinn í skólanum hafinn.... sjitt hvað það er erfitt að hafa sig í það að vakna á morgnana þegar það er svona lítið eftir..... á einungis eftir að mæta örfáa daga í skólann svo kemur bara páskafríið áður en mar veit af... eins gott að tíminn líður svona hratt því ÉG GET EKKI BEÐIÐ eftir að klára skólann..... það er ömurlegt að vera komin með svona skólaleiða þegar það er svona lítið eftir.. en núna vil ég bara rumpa þessu af !!!

Annars verð ég að deila einu með ykkur lesendur góðir
..... Af hverju eru Íslendingar á ferðalagi svona dónalegir, frekir og ókurteisir....!! ég hef hitt og spjallað við fullt af fólki (danskt eða annarra þjóða fólk) sem vinnur á veitingastöðum/börum/skemmtistöðum og alltaf um leið og ég segi hvaðan ég er þá fer fólk að spyrja mig af hverju íslendingar gefi aldrei þjórfé, af hverju það er alltaf svona mikill hávaði í þeim, af hverju það er svona dónalegt og af hverju það heimti að fá allt sem þau vilja...!! Ég hef reynt að gefa einhverjar skýringar á þessu eins og við gefum ekki þjórfé af því við erum ekki vön því.....!?!?!?!  En viti menn ég sko löngu hætt að verja mig og yppi bara öxlum... Ég vinn nú líka í þessum þjónustugeira og það eru ENGIR aðrir en Íslendingar sem kvarta eins mikið!!! Það er ALLTAF eitthvað AÐ og þeir finna alltaf eitthvað til þess að tuða yfir...!! Sem dæmi kom hópur af íslenskum konum að borða þar sem ég er að vinna..... þær voru varla sestar niður þegar þær byrjuðu að kvarta og (án þess að ýkja) allt var ómögulegt!!!! ekki nóg með það, þegar ég var búin að brosa mínu ljúfasta allan tíman og vera ekkert nema næs og sko bíta í tunguna á mér svo ég myndi nú ekki missa eitthva út úr mér þá var ekki ein sem brosti og þakkaði fyrir sig þegar þær fóru !!!!Ég er búin að vinna þarna síðan í Desember og EKKI 1X hef ég fengið kúnna sem kvartar !!!! Konurnar "frábæru" töluðu um að ein tegundin af hvítvíninu væri skemmd og vildi sko fá nýtt... ekki mikið mál og opnaði ég nýja flösku handa henni og gaf ríflega í glasið... eftir að hún hrifsaði glasið að sér og fussaði yfir því hva þetta væri nú ekki hægt að servera svona ónýtt vín þá fór ég yfir á barinn í vinnunni og þar var Bar Managerinn að vinna sem er með reyndustu barþjónum í DK og hefur unnið til margra verðlauna.... hann smakkaði vínið og sagði að þetta væri bara svona á bragðið þar sem þetta væri Chabliz hvítvín og frekar sérstakt og dýrt vín sem ekki allir kunna að meta...... nefndi ég þá þá staðreynd að þetta hefði verið íslensk kona sem hefði kvartað þá kom hann einmitt með þá ræðu að hann væri nú örugglega í gegnum árin búin að þjóna yfir 10.000íslendingum og hefur hann 2x fengið tips frá íslendingum....  !!! Hann sagði að íslendingar væru þekktir í DK fyrir nísku, hávaða og aldrei hægt að gera þeim til geðs.... !!!!
Eftir yfirlýsinguna tilkynnti ég honum það að ég væri íslensk.... ég hef ALDREI séð neina manneskju roðna jafn mikið !!!

Anyways... þetta lá mér bara á hjarta og líður mér betur að hafa deilt þessu með ykkur... þ.e.a.s. ef þú hefur nennt að lesa herlegheitin !!

If interested þá er þetta heimasíðan í vinnunni minni: www.hotel27.dk

Annars er ég bara þokkalega jákvæð.. búin með ávaxtaþeytinginn minn á á leiðinni í Bodypump og beint á eftir í BodyFlow.... Svo er það íslensk ýsa og soðnar kartöflu með smjöri í aftensmad :)

-siggalóbig

how about that !!

29. janúar 2008 klukkan 23:23

Svei mér þá þetta er ekki hægt sko.... mar kominn með nýtt blogg og nýja myndasíðu og svo bara gerist ekkert hjá mér.... þetta er alveg hreint til skammar....!!! En nú er bót í máli og er ég búin að setja inn FULLT af myndum....!!!

Þessi janúarmánuður er búinn að vera frekar svona strembinn en auðvitað gott og auðvelt inn á milli eins og kannski myndirnar sýna... Glottandi

Ég skilaði stóru verkefni 8.janúar og í kjölfarið af því var partý hjá Service Management nemendunum í skólanum. Það var góð stemmning og alltaf gaman að kynnast frábæru fólki svona akkúrat á endasprettinum.. hehe alveg týpískt..!!
Eftir þetta tók við vinna, lærdómur og hreingerningar í kotinu þar sem ekki var búið að gera neitt mjög mikið síðan fyrir jól....!!! En tjúttið var ekki langt undan og vorum við nokkur í bekknum sem hittumst og borðuðum geggjaðan lax með öllu tilheyrandi sem ein stelpan hristi fram úr einari...!! (nota bene.. borða ALDREI LAX og finnast hann EKKI góður... en þarna gúffaði ég í mig eins og ég hefði aldrei fengið að borða áður..... og hann var sjúklega góður!!)

Daginn eftir þetta frábæra matarboð sem endist nú til alltof lengi með kokteilum í bænum þá skelltum við hjúin okkur til Íslands...!! þegar Express er með tilboð þá var nú ekki hægt annað en að skella sér að sjá litlu frændur sína og kíkja í eitt stykki útskriftarveislu hjá Guðríði vinkonu....!!
Við ákváðum að segja engum frá því að við værum að koma heim því ferðin var MJÖG stutt og enginn tími til að hitta alla...!!! surpræsið tókst allt saman vel og fólk varð ansi hissa... þó svo að sumir hverjir hafi nú þótt ekkert sjálfsagðra en að mæta í útskriftarveisluna.. hehehe !!!
En eftir Ísland þá tók við enn meiri lærdómur þar sem ég fór í próf í gær....... nú er það loksins búið og komin svona oggupínsu kyrrð yfir mig.....!! Það er alltaf nóg að gera en það er alltaf betra að hafa ekki próf svona hangandii yfir sér.... :)  

En.. gott í bili... fullt af myndum en bara að láta ykkur vita að þær koma í öfugri röð... og spare with me people... ég veit að ég er á ansi mörgum myndum en svona er þetta bara þegar myndavélin er komin á loft og stuðið farið að renna í blóðinu.. ég ræð bara ekkert við þetta...!!! Svalur

laterz

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigríður Hrönn Pálsdóttir
  • Staður: Frederiksberg C
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: NEMI
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð

Klukkan

Leit